05.06 / 18.07 2010

Participants DRA/ Þáttökulisti DRA

Elín Anna Þórisdóttir / Ann Noël / Malcom Green / Birta Jóhannesdóttir
Karl Roth / Solveig Thoroddsen / Þórarinn Ingi Jónsson / Jeannette Castioni
Harpa Björnsdóttir / Aðalheiður S. Eysteinsdóttir / Magnús Árnason / Finnur Arnar
Gunnhildur Hauksdóttir / Arnar Ómarsson / Andrea Tippel /Erika Streit
Rut Himmelsbach / Rúna Þorkelsdóttir / Henriëtte Van Egten / Jan Voss
Sigríður Björnsdóttir / Dadi Wirz / Kristján Guðmundsson / Björn Roth / Oddur Roth
Þórarinn Blöndal / Íris Ólöf Sigurjónsdóttir / Sigríður Torfadóttir Tulinius
Martin Engler / Vilborg Dagbjartsdóttir / Gunnar Már Pétursson / Martijn Last
Gunnar Helgason / Avanti Ósk Pétursdóttir / Pétur Kristjánsson / Eggert Einarsson
Beat Keusch / Gertrud Otterbeck / Reiner Pretzell / Einar Roth / Steinunn Svavarsdóttir
Þórunn Svavarsdóttir / Halldór Ásgeirsson / Aðalheiður Borgþórsdóttir / Ásgeir Skúlason

Dieter Roth Akademían (DRA), var stofnuð í minningu Svissnesk/þýska listamannsins Dieter Roth í maí árið 2000, tveimur árum eftir að hann lést.
Upphaflega voru það vinir, samstarfsmenn og fjölskylda Dieter Roth sem komu saman og ákváðu að láta hugmyndir hans um akademíu verða að veruleika. Samtök eða félagsskap þar sem listamenn og annað gott fólk kæmi saman, sýndu verkin sín, hjálpuðust að, miðluðu þekkingu og létu almennt gott af sér leiða.
Stofnendurnir/prófessorarnir bjóða öðrum listamönnum þátttöku ýmist sem nemendum eða prófessorum, allt eftir reynslu þeirra og þekkingu.
Akademían er ekki stofnun og hefur engan rekstur og enga skriffinnsku. Það má kalla það fyrstu lexíuna í akademíunni að alla skipulagningu og pappírsvinnu sem fylgir því að komast í samband við prófessorana víða um heim verða nemendur að sjá um sjálfir.
Í dag eru nokkrir tugir meðlima í DRA. víða um Evrópu, í Kína, Ungverjalandi, Íslandi og Nýju Mexíkó, sem hittast árlega og halda ráðstefnu um listir.
Samfara ráðstefnunum eru myndlistasýningar, fyrirlestrar, gjörningar og listasmiðjur. Þungamiðjan í öllu saman eru verk Dieter Roth, heimspeki hans og lífskraftur.

Dieter Roth kom eins og stormsveipur inn í heim íslenskrar menningar í lok 6. áratugarins þegar hann settist að í Reykjavík ásamt barnsmóður sinni Sigríði Björnsdóttur.
 Dieter tók að sér  að kenna við Myndlistaskólann í Reykjavík fyrir tilstilli Ragnars Kjartanssonar myndhöggvara sem þá var skólastjóri. Starf Dieters við skólann hafði mikil áhrif á þá listamenn og kennara við skólann sem kynntust honum og hugmyndum hans.

Áhrifa verka og hugmynda Dieters Roth á Íslandi urðu margvísleg og afgerandi, ekki síst ásviði myndlistar og hönnunar. Sér raunar ekki fyrir endann á þeim áhrifum, eins og kom fram í því að á Listahátíð í Reykjavík 2005 var sérstök áhersla á samtímamyndlist. Ber þar helst að nefna viðamikla sýningu á verkum Dieter Roth í þremur listasöfnum; Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og Gallerí 100° en sýningin þar var í samvinnu við Nýlistasafnið.

Svissnesk/þýski listamaðurinn Dieter Roth átti heimili sitt á Íslandi frá sjötta áratug síðustu aldar. Svo vill til að hann starfaði um tíma hjá prentsmiðju Odds Björnssonar á Akureyri, en Oddur var ættingi Sigríðar eiginkonu Dieters og barnsmóður.

Dieter Roth akademían á sér sterkar rætur á Íslandi og hefur fjölmörgum nemendum verið boðin þátttaka. Árlega fer Listaháskóli Íslands með nemendur í vinnubúðir á Seyðisfjörð undir leiðsögn Björns Roth og Kristjáns Steingríms Jónssonar. 
Back to Top